Búi
Sögur frá Tulipop: Leyniskógurinn
Þessi fallega myndskreytta bók ber nafnið Leyniskógurinn og er fyrsta bókin í bókaröðinni „Sögur frá Tulipop" og kom út í lok ársins 2019. Bókin segir söguna af því þegar sveppasystkinin Búi og Gló fara í leiðangur inn í Leyniskóg þar sem leynast dularfullar verur.
Bókin er 32 blaðsíður, með vandaðri harðspjalda kápu og ríkulega myndskreytt.
Heillandi og skemmtileg bók fyrir börn á öllum aldri byggð á ástsælu persónunum úr íslenska ævintýraheiminum Tulipop eftir Signýju Kolbeinsdóttur.
Úr ★★★★☆ (4,5*) umsögn Lestrarklefans um bókina:
„Textinn er ríkulegur, málfar fallegt, myndirnar stórkostlega ævintýralegar og dularfullar. Það er hægt að sökkva sér inn í myndirnar, sem nær stökkva af síðunni í öllum regnbogans litum. Og svo er lúmskur húmor í bókinni sem er hægt að hafa mjög gaman af – börn og fullorðinir."
Leyniskógurinn er einnig til á ensku.
![Sögur frá Tulipop: Leyniskógurinn](http://shop.tulipop.is/cdn/shop/products/bok_jol-07_1445x.png?v=1665395550)
![Sögur frá Tulipop: Leyniskógurinn](http://shop.tulipop.is/cdn/shop/products/bok_jol-08_1445x.png?v=1665395550)
![Sögur frá Tulipop: Leyniskógurinn](http://shop.tulipop.is/cdn/shop/products/bok_jol-09_1445x.png?v=1665395550)